Jákvæður agi

Grunnskólinn á Hellu byrjaði haustið 2023 að innleiða og vinna eftir uppeldisstefnu jákvæðs aga.

Eftirfarandi samantekt um hugmyndafræðina er tekin af heimasíðu jákvæðs aga.

Jákvæður agi  

Uppeldisstefnan Jákvæður agi byggir á sjálfsstjórnarkenningum, sem fela í sér að horft er á orsakir hegðunar fremur en t.d. að reyna að breyta hegðuninni með umbun og refsingu eins og lengi hefur tíðkast.
 Jákvæður agi  gengur út á að móta umhverfi í skólum, heimilum og vinnustöðum sem einkennist af umhyggju og byggist á gagnkvæmri virðingu, reisn, vinsemd og festu. 

Jákvæður agi kennir félagsfærni og lífsleikni 

  • Meginreglur Jákvæðs aga hjálpa til við að byggja samband væntumþykju og virðingar og þær auðvelda að finna lausnir til frambúðar.  
  • Jákvæður agi byggir á kennslu, skilningi, hvatningu og samskiptum.  

Börn verða ábyrgðarfull ef þau fá tækifæri til að þroska félagsfærni sína í gegnum lífsleikni í andrúmslofti virðingar, góðvildar og festu. Jákvæður agi byggir á því að börn þroski og efli með sér færni í að finna lausnir og setja sér mörk í samvinnu við fullorðna.