Ábendingar

Ábendingar

Á leið í og úr skóla:

Nemendur skulu gæta fyllstu varúðar á leið sinni í og úr skóla. Þeir skulu virða umferðarreglur og bera endurskinsmerki. Nemendur sem ferðast með skólabílum verða að nota öryggisbelti að sýna varkárni þegar farið er inn og út úr skólabílnum. Athugið að skólareglur eru í fullu gildi í skólabílnum. Skólinn tekur enga ábyrgð á reiðhjólum, hlaupahjólum, línuskautum eða öðrum þeim verðmætum sem nemendur koma á í skólann.

 Öryggismyndavélar:

Öryggismyndavélum hefur verið komið fyrir á nokkrum stöðum á göngum skólans og á útisvæðum. Tilgangur með myndavélunum er að auka öryggi nemenda á skólatíma. Sjá nánar um öryggismyndavélar í kaflanum um “gæslu”.

Um nesti:

Mikilvægt er að allir nemendur neyti góðs morgunverðar áður en þeir koma í skólann á morgnana. Þar sem allir nemendur skólans eru sjálfkrafa skráðir í mötuneyti skólans fá þeir morgunhressingu (ávexti) alla morgna nema föstudaga. Nemendum er jafnframt heimilt að koma í skólann með hollt og vel frágengið nesti að heiman. Kennarar ætla nemendum 5 - 10 mínútur til að neyta morgunhressingar. Góður morgunverður og nestisbiti eru undirstaða námsárangurs.

Forföll og leyfi

Öll forföll ber að tilkynna skólanum eins fljótt og hægt er . Ef nemendur mæta ekki í skólann að morgni og tilkynning berst ekki til skrifstofu skólans um eðlileg forföll eða leyfi, mega foreldrar búast við að ritari skólans hringi heim til viðkomandi til þess að kanna af hverju nemandinn mætir ekki. Þetta er m.a. gert til þess að auka öryggi nemenda þ.e. að tryggja að öll börn sem fara að heiman að morgni skili sér í skólann. Ef nemendur þurfa að fá leyfi frá skólasókn í fleiri en tvo daga þurfa foreldrar/forráðamenn að sækja um það skriflega til skólastjórnenda. Leyfi til lengri eða skemmri tíma veitir skólastjóri eða umsjónarkennari.

Símar skólans eru:

Afgreiðsla: 488 7020

Skólastjóri: 488 7021

Aðst. skólastjóri: 488 7022

Kennarastofa: 488 7023

Netfang: grhella@grhella.is

 

Tapað - fundið

Finni nemandi eitthvað eða tapi einhverju í skólanum, skal hann tilkynna það til kennara, eða til starfsmanns á kennarastofu sem fyrst. Æskilegt er að merkja fatnað, skólagögn o.fl. til þess að auðvelda nemendum að þekkja eigur sínar.