Dagur stærðfræðinnar

Dagur stærðfræðinnar var haldinn í annað sinn í skólanum okkar í dag í tilefni af alþjóðlega Pi-deginum sem er þann 14. mars ár hvert. Að þessu sinni var þemað rúmfræði. Nemendum var skipt þvert á bekki á mið- og elsta stigi, auk þess sem nemendur 1.–2. bekkjar annars vegar og 3.–4. bekkjar hins vegar unnu saman í fimm til sex manna hópum. Nemendur leystu fjölbreytt rúmfræðiverkefni, tóku þátt í keppni í reikniaðgerðum og margföldunartöflunni. Verkefnin voru sniðin að getu hvers aldurshóps og gekk vel að leysa þrautirnar.

Það var til mikils að vinna, en í hverjum aldursflokki var veittur bikar til þess hóps sem sigraði. Allir nemendur fengu sömuleiðis muffins köku, relgustiku og strokleður. Bikarar verða geymdir í skólanum og að sjálsögðu verða hengdar upp myndir af sigurvegurum á veggi skólans. 

Sigurvegarnir að þessu sinni voru:

í 1. - 2. bekk:  Pálmar Árni, Áslaug María, Jökull Máni og Vilhjálmur Eggert

í 3.- 4. bekk: Daniel, Jacqueline, Nói Róbert, Dagmar, Sóldís Kara og Þröstur Freyr

Á miðstigi: Edda Margrét, Halldór Darri og Þorbjörg Helga

Á elsta stigi: Aron Freyr, Aron Ingi, Laufey Anna og Veigar Kári

Skipuleggendur dagsins voru þær Magda og Ólöf og eiga þær heiður skilið fyrir þá vinnu.

Hér má sjá myndir frá deginum