Farsældardagur 11. mars 2026

Farsældardagur í Heklukoti og Grunnskólanum Hellu

Miðvikudaginn, 11.mars 2026 er farsældardagur fyrir nemendur og foreldra í Grunnskólanum Hellu og Heklukoti en þá verður kynning á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og farsældarlögum fyrir nemendur. Miðvikudaginn 11.mars kl. 16:30 er foreldrum boðið í Menningarsalinn á Dynskálum 8 Hellu og fá kynningu á Farsældarþjónustu eða lögum um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna nr.86/2021. Samfélagslögreglan mætir einnig á þann fund með foreldrum og fer yfir ýmsar reglur sem gott er að rifja upp.

Markmið farsældarlaganna er að tryggja að börn og foreldrar hafi greiðan aðgang að þeirri þjónustu sem þau þurfa og að þau fái rétta aðstoð á réttum tíma, frá réttum aðilum. Tilgangur farsældardagsins er ekki síst að auka þekkingu meðal foreldra á því hvað í farsældarþjónustu felst og veita þeim upplýsingar um hvort hún getur nýst þeirra fjölskyldu.

Við vonumst til að sjá sem flesta foreldra nemenda í Heklukoti og Grunnskólanum Hellu kl:16:30 þann 11.mars  í Menningarsalnum boðið verður upp á kaffi og með því 😉

Arna Hrönn Aradóttir verkefnastjóri innleiðingar farsældar mun sjá um fræðsluna.

Vonumst til að sjá sem flesta

Hægt er að kynna sér farsældarþjónustuna  á vef Barna- og fjölskyldustofu: https://www.farsaeldbarna.is/

Farsældardagur