Kastalinn vígður

Það var kátt á hjalla á nýja leiksvæðinu norðan við skólann þegar klifurkastalinn var vígður í dag. Með þessari viðbót er leiksvæðið að taka á sig þá mynd sem við höfðum hugsað okkur. Þar eru núna fjórar rólur, sandkassi fullur af sandkassadóti og svo kastalinn.