Íslenskuskólinn fékk menntaverðlaun Suðurlands

Verkefnið „Íslenskuskólinn: Hagnýt orðaforðakennsla í ÍSAT“ við Grunnskólann á Hellu hlaut Menntaverðlaun Suðurlands 2025, sem afhent voru við hátíðlega athöfn í gær. Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, var heiðursgestur samkomunnar og afhenti verðlaunin.
 
Íslenskuskólinn er hagnýt orðaforðakennsla í íslensku, fyrir tví- og fjöltyngda nemendur í Grunnskólanum Hellu. Sérstök áhersla er lögð á nemendur sem eru fæddir á Íslandi, tala annað tungumál heima og hafa verið í íslensku skólakerfi frá unga aldri. Áhersla er lögð á orðforða úr þrepi 2, en það eru orð sem heyrast sjaldan en koma oft fyrir í textum námsbóka.
Nokkrir kennsluhópar eru í Íslenskuskólanum frá 1.-10. bekk og gaman að segja frá því að elsta bekkjardeild leikskólans Heklukots kemur aðra hverja viku, 40 mínútur í senn, í Íslenskuskólann og fær orðaforðakennslu.
Þetta er því Íslenskuskóli á skólatíma og nemendur koma að jafnaði nokkrum sinnum í viku.
 
Verkefnastjóri og hugmyndasmiður Íslenskuskólans er Ragnheiður Gísladóttir. Hún tók við verðlaununum fyrir hönd Grunnskólans á Hellu. Ragnheiður býr að víðtækri reynslu og þekkingu á málaflokknum en hún hefur starfað sem grunnskólakennari í 18 ár, þar af í yfir áratug við kennslu íslensku sem annars tungumáls (ÍSAT).
 
Við erum afar stolt af verkefninu og erum heppin að hafa Ragnheiði Gísladóttur í okkar skóla til að leiða verkefnið. Til hamingju elsku Ragnheiður okkar.