Ruslatínsla og pyslupartý

Síðastliðinn miðvikudag var tiltektardagur í skólanum. Meðal verkefna hjá 8. bekk þann daginn var að fara út og tína rusl í fallega þorpinu okkar. Nemendur fundu fleira en bara rusla á ferð sinni um þorpið en þeir rákust á lítinn ófleygan fugl. Strákunum sem fundu fuglinn þótti líklegt að hann væri svangur og rótuðu eftir ormum fyrir hann til að éta. Á meðan strákarnir snérust í kringum fuglinn fylltu stelpurnar hvern pokann af fætur öðrum af rusli. Skemmtilegur dagur hjá nemendum, fuglinn líklega orðinn saddur og þorpið hreint og fínt.

Í lok dagsins var svo boðið upp á grillaðar pylsur fyrir allan skólann.

Hér má sjá myndir af fuglahvíslurunum, þeim stelpum sem tíndu mest rusl og af pylsupartýinu.