Slæm veðurspá á morgun, föstudag

Á morgun, föstudag er gul veðurviðvörun frá kl. 08:00-11:00 og verður hún þá appelsínugul. Skólinn verður að sjálfsögðu opinn en við gerum ekki ráð fyrir að skólabílarnir sæki í fyrramálið né aki heim.
Staðan verður endurskoðuð í fyrramálið. Ef eitthvað breytist varðandi skólaaksturinn verður sendur út póstur í fyrramálið.