TEAMS fundur við Gunnar Helgason og Björk Jakobsdóttur

Gunnar Helgason og Björk Jakobsdóttir komu í “heimsókn” í skólann í dag í gegnum TEAMS og ræddu við nemendur um bækur sínar Barnaræninginn og Hetja. Áður höfðu krakkarnir horft á kynningu á bókunum í gegnum netið og voru búnir að undirbúa spurningar fyrir höfundana. Allt gekk þetta eins og í sögu og höfðu allir gagn og gaman af.