Vinabekkir á Lund að syngja þorralög

Í síðustu viku fóru vinabekkirnir 2. og 7. bekkur saman á Lund. Þar sungu bekkirnir saman nokkur þorralög fyrir heimilisfólk og starfsfólk. Fengu þau að launum djús og kex.