Síðustu vikur hefur skólinn farið með alla nemendur í okkar árlegu vorferðir.
Vorferðalag unglingastigs var farið 8. maí. Vegna veðurs þurfti að breyta upphaflegu plani, sem var kajakferð á Stokkseyri og sund í Þorlákshöfn. Þess í stað var farið í keilu í Egilshöll, nesti borðað á útivistarsvæði í Hveragerði, farið í sund í Laugaskarði sem er ein elsta sundlaug landsins, með ekta hveragufu, stórum heitum potti með stökkbretti við endann á 50 metra langri laug.
Á heimleiðinni var komið við í Huppu á Selfossi.
Vorferð yngsta stigs var farin 14. maí. Ferðinni var heitið í Sandártunguskóg þar sem börnin léku sér og busluðu í læknum og grillaðar voru pylsur í blíðskaparveðri.
Vorferð miðstigs var farin 21. maí, að þessu sinni var byrjað á sundi í Kópavogslauginni. Að sundi loknu var borðað dýrindis nesti á Rútstúni og að lokum var farið í keilu í Egilshöll.
Hér má sjá myndir frá ferðunum